Aneta Joanna

Hér set ég inn uppskriftir og heimaverkefni fyrir námið mitt í áfanga sem heitir “Sérfæði og matur við sérstök tækifæri”.More about me.

Þessar orkustangir gerði ég sem fyrsta heimaverkefnið mitt í áfanga sem heitir “Sérfæði og matur við sérstök tækifæri”.

Orkustöngin er hentugur millibiti sem gott er að grípa í þegar þörf er á aukaorku og getur komið sér vel eftir íþróttaæfingar, skóla eða sem nesti í ferðalögum. Í einni orkustöng eru 160 hitaeiningar, 3 g mettuð fita og 8 g af viðbættum sykri, en fer alveg eftir hvaða múslí er valið.

Uppskriftin er auðveld að gera og tekur ekki langan tíma að baka. Mikilvægt er að láta bitanna kólna áður en þeir eru skornir niður í bita.

Það sem ég á ofnæmi fyrir hveiti valdi ég múslí án hveiti, og án viðbætts sykur, en það er hægt að nota hvaða múslí sem er.

Í uppskriftinni er hveiti en ég notaði einnig glútenlaus hveiti. Ég notaði blandaðir þurrkuðu ávextir sem ég átti heima en ég bætti vínber. Með að velja mismunandi múslí og þurrkaða ávexti er hægt að breyta bragðinu og skemmtilegt að gera margar útfærslu af orkustöngum þannig. Það er alltaf gaman að breytta aðeins uppskriftinni svo ekki vera hrædd við að leika sér aðeins með.

Uppskrift

5 1/2 dl döðlur

1/2 dl aðrir þurrkaðir ávextir eða ber

100 g smjör

2 dl haframjöl

2 dl múslí

2 1/2 msk hveiti

1 1/2 tsk lyftiduft

1 dl púðursykur

1 tsk vanillusykur

2 msk sýróp

Aðferð:

  1. Saxið þurrkaða ávexti, döðlur og ber.
  2. Bræðið smjörið og blandið síðan öllu hráefninu saman.
  3. Dreifið deiginu á bökunarplötu klædda bökunarpappír eða í form um 20 x 30 cm. Deigið á að vera um 1/2 cm þykkt.
  4. Bakið í 15 mínútur við 175 gráður og látið kólna.
  5. Skerið í bita og pakkið í smjörpappír.

Aðferð í myndum:

Hráefni: